Landbrot ehf. hrossaræktarbú er félag sem stofnað var árið 2009 utan um hestaeign og hrossarækt Arnars Bjarnasonar og Önnu Maríu Pétursdóttur sem búsett eru á Seltjarnarnesi. Hrossin okkar eru kennd við Þykkvabæ I í Landbroti í Vestur-Skaftafellssýslu.
Ræktunarmarkmið okkar er að rækta léttstíg hross sem eru sjálfberandi í reið, með allar gangtegundir og góðan vilja. Hvað varðar byggingu hrossa, þá leggjum við mesta áherslu á háttsettan háls og herðar, öflugt bak og lend og gott samræmi. Varðandi eiginleika þá er ræktunarmarkmið okkar að rækta alhliðageng hross, með mjúkt tölt og afburða geðslag.
Ættmæður okkar
Lyfting frá Þykkvabæ I
IS2006285260
Faðir: Þokki frá Kýrholti (IS1997158430)
Móðir: Jörp frá Þykkvabæ I (IS1996285260)
Hæsti kynbótadómur 5 vetra árið 2011
| Aðaleinkunn | 8,08 |
|---|---|
| Bygging | 7,72 |
| Hæfileikar | 8,32 |
Freyja frá Prestsbakka
IS1993285026
Faðir: Gnýr frá Hrepphólum (IS1988188170)
Móðir: Gyðja frá Gerðum (IS1982286002)
| Aðaleinkunn | 8,03 |
|---|---|
| Bygging | 8,08 |
| Hæfileikar | 7,99 |