Ísmót á Svínavatni

Dögun undir stjórn Helgu Unu Björnsdóttur tók þátt í sínu fyrsta keppnismóti, þegar hún keppti í A-flokki á ísmóti sem haldið var laugardaginn 5 mars á Svínavatni í Húnavatnssýslu. Dögun komst í úrslit og lenti að lokum í 7 sæti af 45 skráðum hrossum með einkunnina 8,41. Í forkeppni fékk Dögun einkunnina 8,52. Glæsilegt hjá Helgu Unu sem er nýbúin að fá Dögun til sín aftur í þjálfun.