Um okkur

Landbrot ehf. hrossaræktarbú er félag sem stofnað var árið 2009 utan um hestaeign og hrossarækt Arnars Bjarnasonar og Önnu Maríu Pétursdóttur sem búsett eru á Seltjarnarnesi og eiga hesthús í Sprettshverfinu á Kjóavöllum í Garðabæ. Hrossin okkar eru kennd við Þykkvabæ I í Landbroti í Vestur-Skaftafellssýslu, þar sem Arnar fæddist og ólst upp. Bændur í Þykkvabæ I eru þau Þórarinn Bjarnason, (bróðir Arnars) og Helga Jónsdóttir. Aðkoma okkar að hestamennsku er fyrst og fremst í formi afþreyingar, það er útreiða í nágrenni Reykjavíkur yfir vetrar og vormánuðina og ferðalögum um hálendi Íslands yfir sumarmánuðina. Hrossarækt okkar hófst ekki skipulega fyrr en árið 2005 þegar við keyptum 1. verðlauna hryssuna Freyju frá Prestsbakka.

Hrossarækt okkar byggi á tveimur ættmæðrum: Annarsvegar, 1. verðlauna hryssunni Freyju frá Prestsbakka (IS1993285026), dóttur heiðursverðlaunahryssunar Gyðju frá Gerðum (IS1982286002) og stóðhestsins Gnýs frá Hrepphólum (IS1988188170). Hinsvegar 1. verðlauna hryssunni Lyftingu frá Þykkvabæ (IS2006285260) sem Inga Þórarinsdóttir, móðir Arnars, gaf honum sem folald. Lyfting er undan Jörp frá Þykkvabæ (IS1996285260) og Þokka frá Kýrholti (IS1997158430).